forsendur fjármálaáætlunar.
Virðulegi forseti. Þarna er Samfylkingin lík sjálfri sér. Af hverju hækkum við ekki skatta? Við verðum að fara að hækka skatta. Við verðum að hækka skatta — það er innlegg Samfylkingarinnar í efnahagsmál dagsins í dag. Við erum reyndar með upplegg um að lækka skatta og ef eitthvað er koma þau skilaboð frá vinnumarkaðnum að lækka mætti skatta meira.
Það stendur í raun og veru ekki steinn yfir steini í málflutningi hv. þingmanns og sagan fer dálítið illa með stóru orðin frá því fyrir ári síðan um fjármálaáætlun. Þá var sagt að þetta væri allt of mikil bjartsýni. Hvar eru hagspárnar sem sýna það? Hagvöxtur árið 2018 var meiri en spáð hafði verið. Nú er komið inn á árið 2019 og hagvöxtur er ekki sá sami og við höfum áður séð en hann er samt töluverður. Ég hef tiltekið nokkur hættumerki í hagkerfinu sem geta breytt stöðunni en eftir sem áður erum við að ná öllum markmiðum okkar. Tökum sem dæmi að tekjuafgangur ársins 2018 var meiri en fjárlög gerðu ráð fyrir sem og fjármálastefnan og fjármálaáætlunin.
Síðan koma menn hingað og segja að einkennilegt sé að gera aðhaldskröfu á ríkisfjármálin. Við erum bara með sömu almennu aðhaldskröfuna og hefur verið undanfarin ár. Það er mikilvægt að hafa þá aðhaldskröfu og gefa stofnunum og ráðuneytum, stjórnkerfinu, færi á að útfæra hana en koma einmitt ekki með sérsmíðaðar niðurskurðartillögur ofan frá sem geta komið sér illa.
Það er ekkert mikið, ég ætla að fullyrða það, að fara fram á 5 milljarða aðhald í jafn stóru fjárlagafrumvarpi þar sem tekjurnar vaxa jafn mikið og raun ber vitni. Þetta er stóra samhengi hlutanna. Við erum enn í hagvaxtarskeiði og erum að gæta að góðri ráðstöfun fjármunanna.