skerðingar í lífeyriskerfinu.
Virðulegi forseti. Ég verð nú að halda því til haga að ég stend ekki hér sem félagsmálaráðherra. Þetta er á málasviði félagsmálaráðherra og það hefur átt sér stað mjög mikil vinna undir hans forystu og þeirra sem hann hefur fengið til verksins til að fá farsæla niðurstöðu. Mér finnst hann hafa gert vel grein fyrir þeirri vinnu hér í þinginu.
Það er ekki verið að hóta neinum neinu í því. Það er verið að reyna að leiða fram faglega og félagslega góða niðurstöðu þar sem við erum að styrkja réttinn, styrkja heildarumgjörð örorkumála á Íslandi og gefa fólki sem hingað til hefur lent í ákveðinni gildru í kerfinu færi á að njóta starfskrafta sinna án þess að það gangi á önnur réttindi. Um það snýst hugmyndafræðin.
Ég held að það sé ekki tími eða aðstæður hér til að tæma þetta mál. Ég bara tek fram að fyrir mitt leyti skiptir ofboðslega miklu máli að það náist góð sátt. Við höfum tekið frá mikla fjármuni í að fjármagna breytingarnar og það má ekki gera lítið úr því. 4 milljarðar eru verulega há fjárhæð (Forseti hringir.) og með kerfisbreytingunni er verið að leggja til afnám þeirra skerðinga sem hv. þingmaður talar um.