fjárhagleg samskipti ríkis og sveitarfélaga.
Herra forseti. Ég spyr einnig um fyrirhugaða frystingu framlaga til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Þessi frysting jafngildir, eins og hefur verið sagt, raunlækkun með hliðsjón af bæði verðbólgu og fólksfjölgun á komandi árum. Hún er að sögn réttlætt með tilvísun í vænta kólnun hagkerfisins. Það er svo sem alþekkt að ef ríkið dregur saman seglin þegar einkageirinn gerir það, ágerist vandinn. Viðbrögð ríkisins við kólnun hagkerfisins verða til þess að ýta enn undir frekari kólnun. Það er einhvers konar snillihagstjórn sem ég kannast ekki við að ríkisstjórnin styðji við niðursveiflurnar og dýpki þær frekar en að ýta á móti þeim og sveiflujafna. Það er mjög undarleg hagfræði.
Mig langar því til að spyrja hæstv. fjármálaráðherra hvernig þetta er hugsað. Það getur verið að það sé eitthvað annað sem stendur til að gera til að reyna að jafna þetta út, en þá verður maður að vita: Verður eitthvað gert til þess að koma til móts við vænta rauntekjurýrnun hjá flestum sveitarfélögum landsins? Er kannski markmið ríkisstjórnarinnar að valda enn frekari þrengingum í rekstri sveitarstjórnarstigsins?
Höfum í huga að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, er m.a. gerður til að koma til móts við sveitarfélög vegna reksturs skóla, þjónustu við fatlaða og fleiri verkefni sem ríkið hefur fært til sveitarfélaga yfir margra áratuga skeið, yfirleitt í stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins, án þess að fjármunir hafi fylgt. Við verðum að fá botn í það hvort það eigi að þrengja að sveitarfélögunum eða hvort þetta sé einhvers konar vúdú-hagfræði, enda er það að styðja við niðursveiflurnar kannski eitthvað sem við viljum ekki gera.