strandveiðar.
Virðulegi forseti. Ég byrja bara á því að segja að þetta mál nýtur míns fulls stuðnings. Ég hef átt í mjög góðu samstarfi við atvinnuveganefnd og formann hennar sérstaklega, sem hefur borið þetta mál uppi og þær breytingar sem gerðar hafa verið á strandveiðikerfinu í nokkurn tíma og var í forsvari fyrir þær breytingar sem voru gerðar á síðasta ári. Að allra mati sem til þekkja og hafa unnið í því kerfi gengu þær hugmyndir upp, þær breytingar lukkuðst afskaplega vel og var almenn ánægja hjá þeim sem horfa til kerfisins. Ég get alveg játað að í upphafi var ég ekki stuðningsmaður strandveiða, svo að það sé sagt, en ég geri mér fullljóst að þetta er komið til að vera og þá ber okkur að ganga þannig frá því að það verði gert með sem bestum og hagkvæmustum og öruggustum hætti. Ég tel að þær breytingar sem formaður atvinnuveganefndar gekkst fyrir á síðasta ári hafi verið til mikils góðs. Það hefur engin úttekt verið gerð á því af hálfu ráðuneytisins né annarra. Það lá fyrir úttekt í aðdraganda þeirra breytinga sem voru gerðar í fyrra en á breytingunum núna hefur ekki verið gerð nein sérstök úttekt. Hins vegar standa allir nefndarmenn að frumvarpinu, öll nefndin er á því sem er ágætisdæmi um eflingu Alþingis, að nefndin taki áfram mál sem hún gekkst fyrir á síðasta ári. Við höfum að sjálfsögðu í ráðuneytinu lagt nefndinni lið við að reyna að búa málið þannig úr garði að það geti orðið sem best og styðjum fullkomlega það verk sem þarna er í gangi.