strandveiðar.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra skýrt svar. Það er kannski einmitt það sem ég velti fyrir mér, hef heyrt það sama og hæstv. ráðherra, að almennt hafi verið gerður ágætur rómur að þessum breytingum. En okkur hefur verið svolítið legið á hálsi fyrir það í gegnum tíðina að hér sé ekki vandað nægilega vel til verka.
Á síðasta ári var breyting gerð til bráðabirgða. Ég hygg að þar séu margir þættir sem muni taka nokkurn tíma, þ.e. að áhrif þeirra breytinga komi fram að fullu. Því er kannski eðlilegt að spyrja áður en ráðist er í að lögfesta þær breytingar ótímabundið, hvort ekki hefði verið ráð að gefa þessu aðeins lengri tilraunatíma og áður en þingið stigi skrefið síðan til fulls og lögfesti það endanlega, og hvort það væru ekki eðlileg og vönduð vinnubrögð að sú ákvörðun væri tekin á grundvelli einhverrar úttektar á málinu en ekki bara almennum rómi um að þetta hafi lukkast þokkalega til.