149. löggjafarþing — 82. fundur,  21. mars 2019.

lengd þingfundar.

[11:08]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Herra forseti. Ég geri sömuleiðis athugasemd við hvernig hæstv. forseti stóð að einhvers konar samráði við þingflokksformenn stjórnarandstöðunnar. Ég var á talsvert áhugaverðum og mikilvægum fundi þegar skilaboð frá hæstv. forseta bárust og var ekkert meðvituð um þessar fyrirætlanir forseta fyrr en ég var komin á þingfund. En þá var orðið of seint að koma að nokkrum athugasemdum hvað þetta varðar. Ég hlýt að óska eftir því að vilji forseti lengja þingfund sjái hann til þess að allir þingflokksformenn séu a.m.k. meðvitaðir um þær fyrirætlanir.