lengd þingfundar.
Forseti gengst við því að samráð eða tilkynning um þessar breytingar hafi verið seint á ferðinni og er þar við forseta einan að sakast, eða öllu heldur annríki hans þar sem ég var bundinn á fundi í allt gærkvöld og opnaði ekki tölvupóst fyrr en leið svolítið á morguninn. Þá sá ég fyrst þessa ósk þingflokksformanna stjórnarflokkanna um að lengja hádegisverðarhléið. Ég boðaði þá um leið að ég myndi leggja heimild til lengri fundar ef á þyrfti að halda sökum þess að fáir reglubundnir þingfundadagar eru eftir. Næsta vika fer að mestu leyti í umræður um fjármálaáætlun ef allt gengur samkvæmt áætlun. Mér var kunnugt um áhuga sérstaklega atvinnuveganefndar á því að fá til sín þau mál sem eru á dagskrá fundarins í dag til að hefja vinnu við þau.
Eitt þeirra var rætt í lok óundirbúins fyrirspurnatíma, sem er fyrirkomulag strandveiða á næsta vori. Þetta reyndi forseti að útskýra í tölvupósti sínum. Það er réttmæt gagnrýni að æskilegra hefði verið að þessi samskipti hefðu átt sér lengri aðdraganda eða farið fram áður en að svona stutt var orðið í þingfund.