lengd þingfundar.
Herra forseti. Hér er kannski ekki um stóratburð að ræða og bara enn eitt sporið í mynstur sem maður er farinn að átta sig á að er í þessu starfi. En hins vegar velti ég fyrir mér ef þrír þingflokkar þurfa að funda með skömmum fyrirvara, væntanlega um fjármálaáætlun sem við fáum ekki að sjá fyrr en á morgun, innsæið segir mér það: Af hverju í ósköpunum geta þessir þingflokkar ekki bara fundað í kvöld í staðinn? Skapandi verkefnastjóri myndi nú kannski leggja prógrammið þannig upp að við héldum okkar dagskrá óbreyttri þannig að það hefði sem minnst áhrif á okkur hin sem erum ekki að fara að funda, því að við höfum enga fjármálaáætlun til að skoða, og þingflokkar stjórnarflokkanna hittist bara í kvöld.