149. löggjafarþing — 82. fundur,  21. mars 2019.

lengd þingfundar.

[11:11]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Það er löng og rík hefð fyrir því að verða við óskum um þingflokksfundi ef þær berast. Þær óskir hafa iðulega í gegnum tíðina ekki síður komið frá þingflokkum stjórnarandstöðu en þingflokkum meiri hluta. Forseti lítur á það sem liðlegheit að taka vel í slíkar hugmyndir. Þetta snýst um að lengja hádegisverðarhlé um hálftíma og ekki mikil ofrausn að ég tel.