lengd þingfundar.
Herra forseti. Ég þakka útskýringar á atburðarásinni og hef fullan skilning á önnum og öðru slíku en það er kannski ekki síst þess vegna sem við fulltrúar stjórnarandstöðunnar teljum okkur knúin til að koma hingað upp og gagnrýna þetta vinnulag. Það er akkúrat vegna álags og annars sem við þurfum á því að halda að svona tilkynningar berist fyrr svo hægt sé að taka afstöðu til þeirra. Vissulega þætti manni líka vænt um að vera boðið upp á að samþykkja svona beiðni sem er ekkert óeðlileg þegar svo ber undir.
Ég tek undir orð hv. formanns Samfylkingarinnar um að það er vissulega lag að öðru leyti að klára þetta mál. Það er ekki eins og við höfum verið í þingsal önnum kafin við afgreiðslu stjórnarmála til þessa. Þessi dagskrá lá fyrir með ágætisfyrirvara. Það eru vissulega einhver vandkvæði í herbúðum stjórnarinnar að klára ákveðin mál en það er kannski annar tími til þess en að kasta svona fram með engum fyrirvara og ganga út frá því að aðrir hliðri til sínu verklagi.