149. löggjafarþing — 82. fundur,  21. mars 2019.

lengd þingfundar.

[11:13]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Herra forseti. Í lögum um þingsköp, 80. gr., segir, með leyfi forseta:

„Þá er forseti hefur ástæðu til að ætla að allir séu á einu máli eða úrslit máls séu ljós fyrir fram“ — aðeins þá, með leyfi forseta — „má hann lýsa yfir því að gert sé út um atriði án atkvæðagreiðslu ef enginn þingmaður krefst þess að hún fari fram. Þá“ — aðeins þá — „skal yfirlýsing forseta koma í stað atkvæðagreiðslu.“

Nú hefur þingforseti sagt okkur að hann hafi bara sent tölvupóst. Hann var ekki búinn að fá svar. Hann mátti ekki líta svo á að samstaða væri um málið. Og þá mátti hann ekki leggja það til á þingfundi að gert yrði úti um málið án atkvæðagreiðslu. Það þurfti enginn að hreyfa andmælum af því að forseti mátti ekki fara af stað.

Virðum þessar reglur. Það gerist aftur og aftur að ekki séu virtar reglur um þingsköp hvað þetta varðar. Í ofanálag hafa þingmenn Pírata sagt og þingflokkur Pírata sent forseta bein fyrirmæli um að ekkert ætlað samþykki sé frá þingflokki Pírata.