149. löggjafarþing — 82. fundur, 21. mars 2019.
lengd þingfundar.
Herra forseti. Ég var ekki búinn að sjá hvernig þessi atkvæðagreiðsla færi enda var ég annars staðar í byggingunni. Hef ég trúað því að hefð væri fyrir því að hringja inn í atkvæðagreiðslur þannig að þetta kom mér á óvart og ég er því nokkuð móður núna eftir að hafa hlaupið upp stigann. En ég óska eftir því að þetta verði gert að jafnaði í framtíðinni, að hringt verði inn í atkvæðagreiðslur.