149. löggjafarþing — 82. fundur, 21. mars 2019.
lengd þingfundar.
Forseti vill taka fram að þingmenn fengu skilaboð um að gera mætti ráð fyrir atkvæðagreiðslum að afloknum óundirbúnum fyrirspurnum. Við þær aðstæður telur forseti ekki að þurfi að hringja sérstaklega, enda er ætlunin að þingmenn séu á þingfundi. Þeir geta vissulega vera einhvers staðar annars staðar en kemur sér vel að þeir eru fótfráir og snöggir til fundarins jafnvel þótt þeir mæðist nokkuð af því. [Hlátur í þingsal.]