149. löggjafarþing — 82. fundur,  21. mars 2019.

taka gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóður.

710. mál
[14:16]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tel að sú tillaga sem hér er lögð til samræmist ágætlega þeirri stöðu sem uppi er í málaflokknum. Því að þegar maður ræðir við sveitarfélögin, hvert og eitt, sem svo háttar til að tengjast með einhverjum hætti fiskeldi, er þeim það sameiginlegt að eiga öll land að sjó. En það liggur ekkert fyrir um með hvaða hætti þau myndu skipta á milli sín tekjunum, því gjaldi sem rynni af þessari starfsemi.

Það eru mjög breytilegar aðstæður í því. Ef við værum að ræða stóru myndina sem snýr að því hvort ríkið eigi að leggja á gjald sem rennur síðan að stærstum hluta til sveitarfélaga, erum við komin inn á svið sem tilheyrir allt öðru málefnasviði en því sem sá ráðherra sem hér stendur sinnir. Þá erum við farin að ræða um tekju- og verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Þá þarf fjármálaráðuneytið, á grundvelli samtals og samráðs við sveitarfélögin, að taka slíkt mál upp í Jónsmessunefndinni. En allt að einu, stærsta vandamálið við þetta og meginástæðan fyrir því að þessi leið er farin í frumvarpinu er sú að við vitum í rauninni ekki enn þann dag í dag hvernig við ættum að skipta því gjaldi á milli ólíkra sveitarfélaga.