149. löggjafarþing — 82. fundur,  21. mars 2019.

taka gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóður.

710. mál
[14:18]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég er reyndar nokkuð viss um að sveitarfélögin væru til viðræðu um að finna sanngjarna leið til að skipta þessu á milli sín. Uppbygging atvinnugreinar eins og fiskeldis hefur sannarlega mikil áhrif í öllum skilningi. Hún hefur samfélagsleg áhrif, efnahagsleg áhrif og ekki síst áhrif í umhverfislegum skilningi.

Við hljótum því í vinnunni fram undan, við bæði frumvörpin að leitast við að gæta að sjálfbærni í öllum skilningi þess orðs og gæta að því að ekki halli á neinn þessara þátta.

Það er annar þáttur varðandi gjaldið sem mig langar að koma inn á, þ.e. hvaða forsendur liggja að baki gjaldinu. Ég tek undir að það er mikilvægt að gjaldið sé ekki það hátt að það geri greinina óhagkvæma. Ég velti fyrir mér hvort einhver greining á framleiðslukostnaði mismunandi framleiðsluaðferða eða sviðsmyndir um markaðsverð til lengri tíma litið, hafi verið unnar til að hafa til hliðsjónar við ákvörðun gjaldsins. Einnig velti ég fyrir mér hvort kostnaður ríkisins vegna þjónustu við greinina hafi verið metinn og hafður til hliðsjónar við ákvörðun þessa.