149. löggjafarþing — 82. fundur,  21. mars 2019.

taka gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóður.

710. mál
[14:19]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S) (andsvar):

Svo ég svari fyrst varðandi þann grunn sem lagður er fyrir þessari gjaldtöku þá kemur upphaflega hugsunin, sem við rekjum gjaldtökunnar til, fram í niðurstöðu starfshópsins sem skilaði af sér 2017. Þar voru ákveðnar stærðir nefndar, en við munum ekki fylgja þeirri leið sem þar er lögð. Eftir frekari vinnu enduðum við á því að horfa til nágranna okkar í Færeyjum sem hafa tekið ákveðin skref í þessu efni, sérstaklega á síðustu sex árum.

Eins og fram kemur í frumvarpinu erum við í rauninni að endurgera það módel sem þar er nýtt við gjaldtöku og styðjumst þar við markaðsvirði á Atlantshafslaxi samkvæmt ákveðinni formúlu. Það leggur grunninn að þeirri gjaldtöku sem við erum að setja hér. Þó er hún lægri en í Færeyjum af þeim ástæðum sem ég greindi frá í framsögu minni, m.a. er tekjutenging hér hjá hafnarsjóðum, sem er hvorki í Noregi né Færeyjum.

Það eru ýmsir þættir í þessu sem skýrast þegar menn fara betur í gegnum greinargerð frumvarpsins og sjá forsendurnar fyrir gjaldtökunni.