taka gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóður.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra kynningu á frumvarpinu og fagna því að við séum hér að ræða og móta framtíðarfyrirkomulag um gjaldtöku vegna fiskeldis í sjó og þar sem verið er að leggja til ákveðinn aðlögunartíma og hvata.
Ég er á svipuðum stað í umræðunni og sá þingmaður sem hér spurði á undan. Telur hæstv. ráðherra að það fyrirkomulag sem þarna er verið að leggja til mæti þeim áskorunum sem sveitarfélögin standa frammi fyrir, bæði varðandi skiptingu tekna milli sveitarfélaga og þeirrar áhættu og uppbyggingu innviða sem óhjákvæmilega fylgir? Eða þarf samhliða að velta fyrir sér því sem var komið inn á áðan, gjaldtökuheimildum sveitarfélaga, af því að það þarf kannski að gera á öðrum stöðum?