149. löggjafarþing — 82. fundur,  21. mars 2019.

taka gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóður.

710. mál
[14:25]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og er ágætt að fá þetta inn til meðferðar samhliða frumvarpinu sem á að setja greininni umgjörð. Um leið bendi ég á að það er nokkuð sérstakt að við séum að byrja á því að leggja umframgjald á nýja og unga atvinnugrein sem við erum ekki einu sinni búin að móta reglur utan um. Þá erum við strax farin að ákveða að leggja á hana aukagjald sem er ekki svo víða í samfélaginu.

Mig langar til þess að spyrja, af því að ég hef lítinn tíma, um hlutfallið í fiskeldissjóð, hvernig getum við tryggt að þetta hlutfall, sem svarar til þriðjungs tekna af gjaldi, renni í þennan sjóð?