149. löggjafarþing — 82. fundur,  21. mars 2019.

taka gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóður.

710. mál
[14:27]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þarf að tala minna og spyrja meira. Við erum að tala um að þetta hlutfall tryggi okkur 263 milljónir árið 2023. Fór fram eitthvert mat á því hvort það sé nægilegt? Og af hverju var sú ákvörðun tekin? Ég spyr líka um önnur lög um gjaldtökur sem sveitarfélög hafa verið óviss um hvernig eigi að beita, t.d. hafnalög sem varða gjaldtöku við bryggju. Ég spyr hvort hafin sé einhver vinna vegna þessarar atvinnugreinar hvað varðar önnur lög sem þetta snertir.