149. löggjafarþing — 82. fundur,  21. mars 2019.

taka gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóður.

710. mál
[14:28]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er verkefni samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins að fara með málefni hafna og gjaldtöku þar, þannig að ég þekki það ekki. Ég veit að þetta hefur verið ásteytingarsteinn í þeim sveitarfélögum þar sem laxeldið er hafið, milli þeirra og fyrirtækjanna sem þar eru að koma sér fyrir. Ég bara þekki það ekki nákvæmlega. Ég þekki það bara af samtölum við sveitarstjórnarmenn að þetta gengur heldur skrykkjótt, sem er ekki æskilegt þegar menn eru að byggja sig upp, langur vegur frá.

Ég minni á að þegar menn eru að ræða gjaldtökuna, eins og þetta er hugsað, er það nokkuð út frá þeim áherslum sem komu fram í þessari samstarfsnefnd. Álagningin, fjárhæðir, er önnur en þar var talað um að gjaldið yrði framleiðslutengt og það yrði lagt á í áföngum. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að full gjaldtaka eigi sér ekki stað fyrr en eftir sjö ár. Verið er að reyna að mæta þeim óskum á þann hátt.