taka gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóður.
Frú forseti. Ég vil hefja mál mitt á að þakka ráðherra fyrir framsögu hans og greinargóð svör. Við ræðum um atvinnugrein sem er á frumstigi en gæti orðið mikilvægur þáttur í íslensku efnahags- og atvinnulífi. Þegar við ræðum um gjaldtöku þá verður manni hugsað til þess að þarna er um að ræða hagnýtingu á því sem við getum kallað takmarkaða auðlind og sú hugsun er vissulega fyrir hendi í greinargerð með frumvarpinu. Þess vegna langar mig til að spyrja ráðherra hvort það hefði ekki verið æskilegt, og sé kannski eitthvað sem við gætum gert í framhaldinu, að skoða nánar þær tekjur sem falla ríkissjóði í skaut í Færeyjum annars vegar og í Noregi hins vegar. Við í atvinnuveganefnd erum nýkomin frá Noregi og fengum þær upplýsingar að það væri mikil skoðun í gangi á vettvangi fjármálaráðuneytisins þar í landi á gjaldtöku af greininni.
Ég vil taka undir með ráðherra að fyrir grein sem er (Forseti hringir.) í frumbernsku þá á það kannski ekki við í upphafi, en við verðum líka að líta til framtíðar.