taka gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóður.
Frú forseti. Ég vil fagna því að þetta frumvarp sé fram komið, bæði vegna þess að ég tel mjög mikilvægt að ræða það, eða koma sem fyrst á gjaldtöku í líkingu við þá sem er fyrirhuguð í því, en ekki síður vegna þess að ég tel mikilvægt að skoða málefni fiskeldis í heild sinni, þ.e. annars vegar lög um fiskeldi og hins vegar gjaldtöku.
Það er engum blöðum um það að fletta að mikill ágreiningur hefur verið um uppbyggingu þessarar atvinnugreinar. Hún er umdeild. Sérstaklega í því ljósi finnst mér að okkur sem hér stöndum og munum véla um þetta mál beri skylda til að stíga varlega til jarðar, hlusta á öll sjónarmið, sjá að það vinnst ekki allt í einu. Enginn mun fá öllum helstu kröfum sínum fullnægt heldur snýst þetta um að ná sem mestri sátt um atvinnugreinina.
Atvinnugreinin er til staðar. Umræðan um fiskeldi er stundum þannig að fólk lætur eins og hér sé ekki fiskeldi. Það eru útgefin leyfi fyrir 45.200 tonnum, ef ég man rétt, og töluverð framleiðsla í gangi. Það sem hefur skort á, þrátt fyrir umbætur Alþingis á löggjöf fyrir nokkrum árum, er skýrari og skilvirkari löggjöf og það sem mér hefur þótt skorta á eru hvatar til umhverfisvænni framleiðslu. Þá er að finna hér. Það er ég alveg sérstaklega ánægður með.
Það hefur legið fyrir frá því að þessi ríkisstjórn var stofnuð að hún lítur á fiskeldi sem vaxandi atvinnugrein. Í stjórnarsáttmálanum er komið inn á það að hún feli í sér tækifæri til atvinnuuppbyggingar. En það þarf, með leyfi forseta: „að byggja upp með ýtrustu varúð í samræmi við ráðgjöf vísindamanna þannig að líffræðilegri fjölbreytni verði ekki ógnað. Samhliða vexti greinarinnar þarf að tryggja nauðsynlegar rannsóknir og eðlilega vöktun áhrifa á lífríkið. Eftir því sem fiskeldinu vex fiskur um hrygg þarf að ræða framtíðarfyrirkomulag gjaldtöku vegna leyfisveitinga.“
Og hér erum við stödd, að ræða þetta fyrirkomulag.
Það hefur lengi verið mín skoðun að allt of sjaldan sé lesið upp úr stefnu Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í þessari pontu og mig langar aðeins að bæta úr þeirri vöntun. Ég sem stjórnarþingmaður vinn að sjálfsögðu eftir þeim stjórnarsáttmála sem samþykktur hefur verið en lít einnig til stefnu eigins flokks eða hreyfingar. Hver er stefna Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í fiskeldismálum og hefur verið um hríð? Jú, með leyfi forseta:
„Í fiskeldi eru miklir vaxtar- og framtíðar möguleikar víða um land. Þeir felast í frekari þróun á umhverfisvænu fiskeldi, eldi sjávardýra og þörungaeldi. Styðja þarf vel við þróunarstarf og rannsóknir og skapa stranga lagaumgjörð og reglur fyrir greinina. Eldi sjávardýra þarf að koma í kjölfar stefnumótunar og regluverks um framkvæmd slíks. Tryggja þarf rétt sveitarfélaga til að skipuleggja haf- og strandsvæði og efnahags- og samfélagsleg áhrif eldis skulu metin á líkan hátt og áhrif á náttúruna. Stjórnvöld ættu að hvetja til framþróunar og nýsköpunar í eldislausnum sem miða að hámarksnýtingu hliðarafurða, verndun villtra stofna og viðkvæmrar náttúru, ásamt því að hámarka dýravelferð og gæði afurða. Taka skal mið af viðmiðum sjálfbærrar þróunar, vísindalegu mati á áhættu og gera kröfur til fyrirtækja um hverjar þær mótvægisaðgerðir sem nauðsynlegar eru svo að eldi geti verið stundað í sátt við umhverfi og samfélög.“
Hér erum við, forseti, að stíga einhver af þeim skrefum sem kallað er eftir í stefnu Vinstri grænna. Verið er að hvetja til framþróunar og nýsköpunar í eldislausnum með því að veita hagræna hvata í þá átt, eins og ég talaði um áðan. Líka er horft til sveitarfélaganna, eins og minnt er á. Raunar er það mín persónulega skoðun að þegar ég blanda saman annars vegar umræðu um gjaldtökuna og hins vegar um fiskeldið sé þriðja hornið á þeim þríhyrningi skipulag haf- og strandsvæða. Þau mál snerta vissulega fiskeldi og erfitt er neita því. En það er líka væntanlegt mál og við munum vonandi fjalla um þau mál sem fyrst.
Þetta frumvarp hæstv. ráðherra var kynnt í samráðsgáttinni, kynnt var ákveðin útfærsla og svo var tekið tillit til athugasemda sem voru gerðar. Hér er kynnt önnur útfærsla.
Ég hef haft þá skoðun varðandi gjald fyrir fiskeldi að horfa eigi á það sem mest eins og auðlindagjald, því að þetta er gjald af nýtingu sameiginlegrar auðlindar í mínum huga. Varðandi hvernig reiknistofninn er fannst mér ágætt við tillöguna sem fór í samráðsgáttina að þar var hugað sérstaklega að því að reiknað værir gjald á hvert útgefið leyfi en mér finnst mjög skynsamleg rök færð fyrir því að gjaldið sé reiknað á framleiðslu.
Margt hefur verið sagt um nágrannalöndin okkar. Sennilega hefur enginn ferð í sögu utanlandsferða verið rifjuð jafn oft upp í þessum þingsal og ferð hv. atvinnuveganefndar til Noregs á dögunum, enda var hún mjög gagnleg okkur sem þangað fórum þar sem við hittum bæði hatramma andstæðinga fiskeldis en einnig fólk sem vinnur í fiskeldi og ekki síst vísindafólk.
En það má horfa til þess, og margir hafa nefnt það í umræðunni, hve mikill munur hefur verið á gjaldtöku á Íslandi og í Noregi. Það má til sanns vegar færa. Þess ber þó að geta að í Noregi á sér stað endurskoðun á því hvernig gjaldstofninn eigi að vera þar í fiskeldi. Hugað er að breytingum, í það minnsta er verið að ræða breytingar í ekki ósvipaða átt og lögð er til í frumvarpinu, einhvers konar auðlindagjald sem jafnvel má reikna á framleiðslu.
Það er því í raun og veru skynsamleg leið að reikna fjárhæð gjaldsins á hvert kíló af slátruðum laxi. Hagrænu hvatarnir í umhverfisátt, sem ég hef minnst á, felast fyrst og fremst í því að það er lægra gjald fyrir ófrjóan lax og lax sem alinn er í sjó með lokuðum eldisbúnaði. Það finnst mér gott. Ég velti því samt fyrir mér hvort jafnvel ætti að ganga lengra og að fyrsta kastið yrði einfaldlega ekkert gjald, til að vera með enn meiri hvata í þá átt. Það eru ýmis sjónarmið uppi um það, eins og t.d. að greiða þurfi í fiskeldissjóð og fleira slíkt. En hugsunin er lauk-, kór- og hárrétt, svo að ég vitni í Skilaboðaskjóðuna. Þetta er það sem ég fagna fyrst og fremst.
Svo kemur nýbreytnin inn í þetta líka sem snýr að sveitarfélögum og uppbyggingu þar. Það er kannski umræða sem við eigum eftir að taka, við öll en ekki bara þau okkar sem eru í hv. atvinnuveganefnd. Hvernig lítum við á fiskeldi? Er það sameiginleg auðlind þjóðarinnar? Á nýting af þeirri sameiginlegu auðlind þjóðarinnar að renna til þjóðarinnar allrar eða er þetta nýting á svæðum og aðstöðu innan einstakra sveitarfélaga? Það er umræða sem bíður okkar. Hvaða sveitarfélög munu njóta góðs af umræddum sjóði? Eru það aðeins sveitarfélög þar sem fiskeldi er stundað eða eiga öll sveitarfélög rétt á því? Við tökum t.d. auðlindagjald af nýtingu orkuauðlinda, sama í hvaða sveitarfélagi þær eiga heimilisfesti.
Eins og ég segi finnst mér mjög gott að þetta mál sé fram komið. Mér finnst góð sú hugsun sem er yfir og allt um kring, að hugað sé sérstaklega að því að það verði lægra gjald á framleiðslu sem er umhverfisvænni. Mér finnst góð sú hugsun sem kemur skýrt fram, að gjaldið sé hugsað til að standa undir kostnaði við þessa nýtingu. Ég ætla að leyfa mér að vitna í greinargerðina, forseti:
„Tilgangur þessa frumvarps er að tryggja ríkissjóði beint endurgjald vegna nýtingar hafsvæða í íslenskri lögsögu sem geti jafnframt staðið móti kostnaði ríkisins við stjórnsýslu. Að auki verði með því forsendur til starfrækslu sérstaks sjóðs, fiskeldissjóðs, sem gert er ráð fyrir að muni njóta framlaga af fjárlögum sem svari til þriðjungs tekna af gjaldi því sem ráðgert er að heimtist í ríkissjóð verði frumvarpið að lögum.“
Þetta eru góð og gild markmið og það verður verk fyrir okkur í atvinnuveganefnd að vinna þetta frumvarp áfram. Ég fagna því að það sé fram komið.