taka gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóður.
Hæstv. forseti. Ég ætla ekkert að lengja þessa umræðu mikið, það er annað mál á dagskrá kl. 3. En mig langaði aðeins til að koma hingað upp til að ræða þetta frumvarp til laga um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð. Um leið og ég fagna þessu þá verðum við að fara varlega í lagasetningu í þessum geira. Eins og hefur komið fram bæði hjá ráðherra og fleirum sem hafa tekið til máls er framleiðslutenging nauðsynleg þar sem greinin getur staðið undir gjaldtökunni. Frumvarp um fiskeldi er enn þá í atvinnuveganefnd og er ekki orðið að lögum þannig að ég lít á þetta sem einhvers konar þreifingar um að taka þetta fyrir með þroskaðri og góðri umræðu.
Ég ætlaði að koma í andsvar við hæstv. sjávarútvegsráðherra en var of seinn, þar sem var töluvert verið að ræða um gjaldtökuhliðina og þann hlut sem hugsanlega rynni til sveitarfélaga. Eins og við vitum var þessi umræða mikil á sínum tíma og hefur stundum komið fram, um hlut sveitarfélaga til auðlindagjalds sjávarútvegsins. Það stoppar á því að það geti átt sér stað vegna laga um opinber fjármál. Ég hefði viljað fá að vita hvort við megum eiga von á því að lenda á einhverjum slíkum þröskuldi með þessa gjaldtöku, með það sem rynni til sveitarfélaganna.
Þessi starfsemi þarf að geta staðið undir sér og hún þarf líka að geta staðið straum af því sem er ófyrirsjáanlegt og því sem kemur upp á. Ég myndi segja að það væri hlutverk greinarinnar, með t.d. slysasleppingar og annað slíkt sem kemur upp, og það væri sjóður sem hægt væri að fara í, sameiginlegur sjóður sveitarfélaga og kannski fiskeldisstöðva sem væri gott að geta farið í. Hérna er talað um fiskeldissjóð og þyrfti að útfæra á þann hátt að það væri gerlegt.
Hér hefur verið minnst á gjaldtöku í Noregi og í Færeyjum og það hefur komið fram í máli manna að frekari gjaldtaka í Noregi er enn þá á umræðustigi. Þeir eru að vinna að því að komast að einhverri lendingu þar. Þar er laxeldi með 50 ára sögu þannig að þeir stíga varlega til jarðar í þessum efnum. En einhvers konar gjaldtaka hefur verið af leyfum hingað til.
Við þurfum að vinna að þessu, stíga varlega til jarðar og að þetta sé ekki greininni til hnignunar, ekki sé gengið of nærri rekstrinum. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra núna en ég fagna því að þetta mál sé komið fram. Það segir mér að við ætlum að vinna vel að þessu máli svo við getum landað því á farsælan hátt fyrir alla aðila.