149. löggjafarþing — 82. fundur,  21. mars 2019.

loftslagsmál.

[15:16]
Horfa

Haraldur Benediktsson (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka sömuleiðis hv. málshefjanda umræðunnar fyrir og hæstv. umhverfisráðherra fyrir ágætt innlegg hans. Ég held að meginmarkmiðið og lykillinn að því að ná árangri í þessu sé að temja sér þá hugsun að við stefnum hér að algjöru kolefnishlutleysi. Hvort við setjum augað á endurheimt votlendis eða aðra þætti, endurnýjun eldsneytisgjafa í samgöngum eða slíka hluti, skiptir ekki öllu þar sem það vinnur allt saman í ágætu samkomulagið hvert með öðru og við getum unnið með alla þá þætti. Það er margt að gerast í þeim efnum sem ég tel að við eigum að setja augu okkar á.

Ég hnaut um það, svo að ég leyfi mér, virðulegi forseti, að tala um þá atvinnuvegi sem eru mér hvað kærastir, landbúnað og sjávarútveg, að við erum ekki nógu upptekin að muna eftir því hvaða stórkostlega árangri sjávarútvegur hefur náð í orkusparnaði og þar af leiðandi minni losun. Minna hefur farið fyrir því að segja frá því hvað t.d. íslensk mjólkurframleiðsla hefur út í gegnum það framleiðslustýringarkerfi sem við höfum haft á undanförnum árum minnkað orkunotkun eða olíunotkun í mjólkurframleiðslu mikið, um 40% á hvern framleiddan mjólkurlítra á síðustu 15–20 árum. Það er mikill árangur.

Ég hnaut líka um það að danskir bændur hafa sett sér það markmið að ná kolefnishlutleysi árið 2050. Þar eru menn að vinna með marga þætti sem eiga ágæta samleið og ágæta samsvörun hér heima líka. Ég minni á að við eigum mikið af landi sem við getum endurheimt gróðurþekju á. Við eigum mikið af tækifærum í landgræðslu og skógrækt.

Þar eru menn t.d. að vinna að rannsóknum og segja frá rannsóknum og því að nota íblöndun í fóður jórturdýra, en unnið er að þeim rannsóknum og þróun á slíku íblöndunarefni suður á Nýja-Sjálandi, sem nánast eyðir losun metans úr meltingu jórturdýra eða kúa. Við höfum á sjóndeildarhringnum (Forseti hringir.) möguleika og tækni til að hreinlega eyða þeim neikvæða þætti sem allt saman getur unnið með okkur við að ná því kolefnishlutleysi sem við stefnum að.