loftslagsmál.
Hæstv. forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni um þessa umræðu um loftslagsmálin, hún er búin að vera mjög góð og upplýsandi. Hún er djúp og er alltaf að verða dýpri, hvort sem er á Alþingi eða annars staðar.
Mig langar aðeins að nefna hér að þær aðgerðir sem gripið hefur verið til eftir að þessi ríkisstjórn tók til starfa, og verið er að grípa til, munu ekki allar skila árangri einn, tveir og þrír. Eðli þeirra er ekki slíkt, en sumar gera það. Þær sem m.a. gera það eru eins og að moka ofan í skurðinn eða minnka matarsóun. Svo eru aðrar aðgerðir sem eru til mun lengri tíma eins og orkuskiptin sem gerast yfir lengri tíma og styttri skref stigin í einu, fræðsla o.s.frv. Þetta er nokkuð sem við verðum að hafa í huga, líka þegar við horfum til þess að nýjustu gögnin okkar eru frá 2016 um losun og ég veit að þau munu eitthvað halda áfram að vaxa, a.m.k. í sumum geirum. Málið er að við verðum að ná þeim toppi eins og fyrir vegasamgöngur, vonandi í allra síðasta lagi á þessu ári, en það munum við ekki vita strax. Það er mikilvægt að hafa þetta í huga.
Kerfisbreytingar eru nauðsynlegar eins og hér hefur komið fram og ég tek innilega undir það. Við vinnum að því samkvæmt aðgerðaáætlun á sömu sviðum eins og varðandi orkuskiptin. Við vinnum að því varðandi endurheimt náttúrunnar — hv. þm. Smári McCarthy kom sérstaklega inn á það — með kolefnisbindingarátakinu. Í því felst að endurheimta votlendi, land o.s.frv.
Það eru nokkur meginatriði sem við verðum að hafa áfram í huga, orkuskiptin, kolefnisbindingin, endurheimt náttúrunnar, neyslan, sem er stórt loftslagsmál, og við gleymum heldur ekki atvinnulífinu sem utan um er heilt kerfi á Evrópuvísu fyrir þau fyrirtæki sem menga hvað mest, svokallað ETS-kerfi sem m.a. stóriðjan okkar er inni í. Það er líka mikilvægt að þau fyrirtæki geri enn þá betur en þar eru gerðar kröfur um. (Forseti hringir.)
Að lokum þakka ég aftur kærlega fyrir umræðuna og ég kem með hv. þm. Ásgerði K. Gylfadóttur til Kvenfélagasambandsins á laugardaginn.