149. löggjafarþing — 82. fundur,  21. mars 2019.

stjórn fiskveiða.

724. mál
[16:10]
Horfa

Frsm. atvinnuvn. (Lilja Rafney Magnúsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Það er hárrétt hjá hv. þingmanni að við í atvinnuveganefnd lögðum upp með það eftir að frumvarpið var samþykkt sl. vor að gera góða úttekt á því hvernig til hefði tekist eftir sumarið og að það gæti legið fyrir tímanlega svo að við gætum metið framhaldið í því ljósi.

Því miður varð ekki af þeirri úttekt. En ég held að það sé ekkert of seint að gera hana. Eins og hv. þingmaður segir eru í öllum atvinnuvegum, sjómennsku sérstaklega, miklir óvissuþættir, ekki bara af mannavöldum heldur líka veðurfarslegir og hvernig fiskstofnarnir haga sér og svo ótal margt sem aldrei verður hægt að girða fyrir og geirnegla að allt verði eins og við alþingismenn viljum að það verði nákvæmlega. Þannig er bara veruleikinn í þessari atvinnugrein, sjómennsku, eins og menn hafa þekkt frá alda öðli.

Á síðasta ári höfðu menn áhyggjur af því að hafa einn pott, að á ákveðnum svæðum myndi kannski verða betri og meiri sjósókn síðari hluta tímabils og þá stæðu menn frammi fyrir því að heildarmagnið væri búið. En við horfðum upp á það í fyrra að það náðist ekki það magn sem var til strandveiða. Og nú erum við að bæta um enn betur. Ráðherra mun gefa út reglugerð upp á 11.000 tonn. Það var gefin út reglugerð upp á 10.200 tonn sem náðist ekki á síðasta ári og var þó nokkuð langt í það, eins og kom fram í máli mínu. Svo ég tel að við getum verið mjög örugg um að allir (Forseti hringir.) fái sína 12 daga. Það hefur verið mjög mikil ánægja heilt yfir hjá greininni með þetta fyrirkomulag.