stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Við ræðum hér frumvarp, lagt fram af formanni atvinnuveganefndar, Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, um strandveiðar. Enda þótt ég styðji sannarlega framgang þessa frumvarps og hafi því lagt nafn mitt við það, hef ég ýmsa gagnrýni við frumvarpið sjálft sem ég ætla að rekja hér á eftir.
Virðulegi forseti. Mér er fyrirmunað að skilja hvers vegna allar þessar takmarkanir eru til staðar og jafnframt tvöfalt aflaþak í þokkabót. Annars vegar pottur fyrir veiðarnar og hins vegar pottur fyrir hvern bát á dag. Og ekki nóg með það, það má bara veiða á sérstökum dögum vikunnar. Ef veðrið er t.d. ekki hagstætt til veiða tapast e.t.v. dagar um helgar. Og það má bara veiða með takmörkuðum fjölda rúlla.
Hjá frændum okkar í Noregi eru Íslendingar sem hafa flust búferlum og komið sér þar fyrir með skráð heimilisfesti. Sjö mánuðum seinna eru landar okkar komnir í blómlega útgerð, með eins mikla ýsu og þeir geta í sig látið og ufsa sem meðlæti og svo 40 tonn af þorski sem síðan er bætt við eftir þörfum. En hér á Íslandi mega menn ekki einu sinni flytja sig á milli bæjarfélaga með bátinn.
Strandveiðikerfið var sett á fyrst árið 2009 af Jóni Bjarnasyni og Steingrími J. Sigfússyni. Það innihélt leyfi fyrir báta undir 12 metrum til að halda til veiða og taka 650 kíló af óslægðum þorskígildum. Þetta var fyrsta skrefið og innihélt 6.000 tonn í allt. Aðrar takmarkanir voru að veiðiferð mátti ekki standa lengur en 14 klukkustundir og jafnframt mátti bara veiða á milli mánudags og fimmtudags, en þar var örlítil klásúla, það mátti bara veiða á meðan birgðir entust og naumlega var skammtað í pottinn. Pottinum var síðan skipt á landsvæði eftir einhverri reiknireglu sem endaði þannig að bátar á svæði C og D gátu að mestu farið flesta daga án þess að það væri stoppað um miðjan mánuð. Það sama má segja um báta á svæði B á meðan bátar á svæði A fengu tvær vikur í hverjum mánuði, ef þeir voru heppnir, þar sem miðin voru gjöful og fjöldinn mestur.
Í fyrra var lögunum breytt og potturinn var gerður landlægur þannig að allir veiddu úr sama potti. Þetta þýðir í rauninni að á svæði A, verandi góð fiskimið, ættu menn að geta fiskað hina í kaf og klárað pottinn. Ástæðan fyrir því að sú varð ekki raunin er sú að seinasta sumar var það mikið veðravíti að bátar komust hreinlega ekki til veiða. Suðurland fékk hins vegar færri daga hlutfallslega en menn áttu að venjast þar sem takmörkunin var 12 dagar í mánuði á hvern bát á meðan birgðir entust, þeir höfðu getað farið í 60 daga áður fyrr, sumir hverjir. En breytingin varð 48 dagar núna fyrir alla á meðan birgðir entust.
Til að bæta gráu ofan á svart er svæðunum haldið þannig að menn geta ekki farið á gjöfulli mið heldur keppast milli landshluta í staðinn fyrir að elta fiskinn eins og var gert áður fyrr.
Eins og staðan er í dag eru allar forsendur fyrir því að bátar á svæði A taki og hreinsi allan kvótann úr pottinum á undan hinum. Í staðinn fyrir að allir hafi jöfn tækifæri gæti svo farið að Suðurland missi dagana sína niður í 40 af því að það gengur svo vel á svæði A.
Þess vegna, forseti, er krafan í það minnsta að allir bátar fái sína 48 daga tryggða og potturinn verði fjarlægður með öllu þar sem forsendurnar fyrir honum eru ekki í neinum tengslum við raunveruleikann á þessu landi sem við búum á.
Eins og ég kom að áðan hefur fólk í Noregi ótakmarkaða sókn í ufsa og ýsu og má síðan taka um 40 tonn af þorski og stundum meira. Þetta getur hver sá gert sem búið hefur í Noregi lengur en sjö mánuði. Á það við um bæði línu- og handfæraveiðar en handfæraveiðibátar eru notaðir sem línubátar á veturna þegar dimmt er og þarf beitu til að laða fiskinn að.
Sú segð að frjálsar veiðar smábáta eigi eftir að kollvarpa fiskimiðunum á við mjög lítil rök að styðjast og höfum við fordæmi í Noregi. Þær eru frjálsar í þeim skilningi að manni sé heimilt að veiða, ekki að það megi veiða allan fiskinn einn eða að allir megi veiða allan fiskinn. Það er mjög erfitt að valda skaða með handfæraveiðum þar sem veðrið afskrifar eiginlega veturinn og jafnframt er myrkur alla þá daga sem er stórstreymt, alla þá daga þegar vindur er meiri en 7 metrar á sekúndu. Eins og við vitum er náttúrlega aldrei rok á Íslandi, kæri forseti.
Nei. Því ætti stefna okkar vera að vera sú að aflétta miðlæga pottinum og bæta við aukategundum til að fá þær í land. Þá held ég að flestir yrðu sáttir við sinn hlut. Það er ekkert rosalegt stökk. Eins og alþjóð veit finnst engin loðna. Það vill svo óheppilega til að hún er aðalfæða þorsks rétt fyrir hrygningu. Eins og góður bakari segir er engin kaka án smjörs. Það væri fásinna að veiða ekki þorsk í meira mæli í þessum aðstæðum. Við höfum ofverndað þorskstofninn í fjölda ára og afleiðingarnar eru sjáanlegar í dvínandi rækjustofni, horfnu sandsíli og loðnustofni sem hvergi finnst. Það á því við smánarleg rök að styðjast að hleypa ekki smábátum á veiðar. Veðrið, straumar, kjörhæfni veiðarfæra og myrkur koma í veg fyrir ofveiði. Ef ofveiði á annað borð er möguleg væri það með veiðarfæri sem veiðir einungis svangan fisk í góðu veðri, í birtu og hagstæðum sjávarstraumum.
Við þurfum að koma þessu á. En ég ætla að bæta hér við öðru, tíminn rennur óðum frá mér. Mig langar til að biðla til ykkar sem hafið taugar til landsbyggðarinnar, þeirra sem telja sig vera velunnara áframhaldandi búsetu, dreifðrar búsetu á landinu öllu: Tökum til baka hluta af þeim skemmdum sem við höfum valdið byggðum landsins með allt of ströngu fiskveiðistjórnarkerfi, færum til baka líf í hafnir landsins, færum ungu fólki tækifæri til að hasla sér völl við fiskveiðar, færum eldri sjómönnum leið til þess að klára seinustu árin við það sem þeir kunna og geta. Við þurfum að gera það með því að hafa raunhæft kerfi. Ef við höfum raunhæft kerfi getum við þetta allt. Án þess getum við nánast ekkert af þessu, rétt eins og sl. 30 ár. Ekkert. Gefum handfæraveiðar frjálsar fyrir fólkið allt.
En nú er ég komin yfir í handfæraveiðar og við ræðum hér strandveiðar. Eins og ég minntist á í upphafi máls míns var það fyrsta skrefið í þessu máli stigið fyrir öllum þessum árum síðan þegar strandveiðum var komið á. Næsta rökrétta skref er að gefa handfæraveiðar frjálsar. Þetta er ekki gagnkvæmt útilokandi, að það frumvarp sem við ræðum í dag verði samþykkt — þótt sú sem hér stendur myndi auðvitað vilja sjá þessar breytingar sem ég hef verið að ræða hérna ná fram að ganga — og að handfæraveiðar verði gerðar frjálsar. Það vill svo vel til að hv. þingmaður, varaþingmaður okkar Pírata, Álfheiður Eymarsdóttir, lagði fram frumvarp fyrir örfáum dögum síðan um frjálsar handfæraveiðar. Fyrir mér liggur í augum uppi að næsta rökrétta skref er að skoða það frumvarp og færa fiskveiðar á Íslandi inn í nútímanum. Ég hvet hv. þingmenn og allan þingheim til að skoða það frumvarp og taka það alvarlega. Það yrði töluvert mikil búbót fyrir þær brothættu byggðir sem við ræðum mjög oft í þessum sal.
Aðeins aftur að svæðaskiptingunni og þeim rökum sem hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir og flutningsmaður frumvarpsins kom inn á, með byggðafestu og slíkt. Strandveiðimenn vilja vera þar sem fiskurinn er, eðlilega. Og hvað varðar festuna sem hv. þingmaður kom inn á þá er það nú svo að t.d. Hornfirðingar búa enn þá á Hornafirði og eyða tekjum sínum þar, jafnvel þó að þeir afli á Vesturlandi. Gjöldin fara þar sem landað er. En fiskurinn er á mismunandi tímum á mismunandi stöðum. Þetta er bara sanngirnismál fyrir landið allt, fyrir þjóðina alla.
Ég hvet okkur sem hér störfum til að horfa svolítið meira á landið sem heild og skipta því ekki upp í landshluta sem býður bara upp á ríg og samkeppni á milli landshluta sem er óþörf að mínu mati.
Ég ætla að ljúka mínu máli með því að koma aðeins inn á eitt aukaatriði í lokin, eiginlega bara þankar í sambandi við þetta. Nú hefur Noregur verið að gera milliríkjasamninga við Grænland. Við ræðum mikið um loftslagsmál og vitum að súrnun sjávar og hækkað hitastig í sjónum hefur áhrif á lífríkið og sjávarfangið og allt slíkt. Kuldi sjávarins er kostur í þessu tilliti. Ég velti því fyrir mér hvort ekki væri ráð fyrir Ísland að skoða það — eflaust á þetta heima í öðru ráðuneyti en sjávarútvegsráðuneytinu, kannski meira í utanríkisráðuneytinu, ég átta mig ekki alveg á hver myndi standa nákvæmlega í slíkum samningaviðræðum — en við þurfum að hugsa fram á veg, hugsa um framtíðina, framtíð þessarar þjóðar, framtíð þessarar atvinnugreinar. Það vill svo til að enn er staðan sú að í kringum Grænland er sjórinn kaldari. Það eru lönd sem eru að gera samninga, milliríkjasamninga, við Grænland í þessu tilliti. Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að Ísland fari þá leið og tryggi stöðugleika þessarar atvinnugreinar fram í tímann, fyrir framtíðarkynslóðir og ég ítreka fyrir landið allt.