stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða og yfirgripsmikla ræðu. Það er alltaf ánægjulegt að eiga orðastað við fólk og hlusta á mál þess sem setur sig vel inn í mál og hefur hugmyndir um hvernig það vill sjá málin þróast. Ég og hv. þingmaður erum náttúrlega meðflutningsmenn að þessu máli ásamt öðrum í hv. atvinnuveganefnd þannig að við getum haldið þessum viðræðum okkar áfram innan vinnu þeirrar nefndar. Mig langaði engu að síður að spyrja hv. þingmann aðeins út í hennar hugmyndir sem hún kynnti hér svo ágætlega.
Það er engum blöðum um það að fletta að um strandveiðar hefur fráleitt ríkt sátt frá því að þeim var komið á. Þvert á móti hefur stór hluti bæði stjórnmálamanna og eins menn utan þessara veggja hér einfaldlega verið á móti strandveiðum. Hæstv. sjávarútvegsráðherra lýsti því yfir í óundirbúnum fyrirspurnatíma í morgun að hann hefði upphaflega verið á móti strandveiðum.
Mig langaði að spyrja hv. þingmann í ljósi þessa, og í ljósi þess að við erum að þoka okkur áfram í að koma á varanlegra kerfi en við höfum, því miður, búið við hingað til, hvort hv. þingmaður telji ekki sigur í því fólginn engu að síður, þó að ekki fáist fram allar þær hugmyndir sem farið var yfir í góðri ræðu hv. þingmanns, að það sé sigur fólginn í því að festa þó það í sessi sem hér er lagt til.