149. löggjafarþing — 83. fundur,  25. mars 2019.

áhrif hvalveiða á ferðaþjónustu.

612. mál
[17:00]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Guðmundur Andri Thorsson) (Sf):

Herra forseti. Hér er um að ræða fyrirspurn sem ég lagði fram í síðasta mánuði. Í millitíðinni hef ég heyrt hæstv. ráðherra eiga orðastað við þingmenn um þessa ákvörðun samráðherra síns í óundirbúnum fyrirspurnum og þykist fara nærri um hver afstaða ráðherrans er í þessu máli.

Samt er gott að fá fram skýr svör hér á þessum vettvangi við tveimur afar mikilvægum spurningum sem ég tel ekki hafa verið fjallað um eða svarað með fullnægjandi hætti í margnefndri skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands. Sem sé hvort ráðherra telji ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um að heimila áframhaldandi hvalveiðar rétta í ljósi stöðu ferðaþjónustunnar og þess að hvalir eru aðdráttarafl fyrir ferðamenn sem tugþúsundum saman fara í hvalaskoðun víðs vegar um landið.

Og í öðru lagi hvort ráðherra telji þessa ákvörðun geta haft áhrif á ímynd Íslands út á við, þar á meðal ímynd íslenskrar ferðaþjónustu og íslenskra afurða.

Í áðurnefndri skýrslu Hagfræðistofnunar, sem sjávarútvegsráðherra virðist hafa lagt til grundvallar ákvörðun sinni, er ekki að finna fullnægjandi svör við þessum spurningum, enda var ekki haft samráð við hvalaskoðunarfyrirtæki eða fyrirtæki í ferðaþjónustu við gerð skýrslunnar. Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar gagnrýndi líka harðlega ákvarðanir ráðherrans og sagði að þar væri meiri hagsmunum fórnað fyrir minni, sem er ekki ofmælt því að útflutningstekjur af hvalveiðum nema á ári 1,3 milljörðum kr., sem er lægri fjárhæð en ferðaþjónustan skapar okkur daglega í gjaldeyristekjur.

Varðandi það orðspor sem hvalveiðar hafa í heiminum má svo nefna að verslun með langreyðakjöt er bönnuð samkvæmt CITES-samningunum um afurðir dýra í útrýmingarhættu. Í heiminum er almennt litið á verslun með langreyðakjöt svipuðum augum og verslun með fílabein. Kannski skjátlast heiminum þar en spurningin er hvort það sé áhættunnar virði að leiða heiminn í allan sannleikann um það að brýnt sé að drepa hvali sem fáir vilja kaupa og enn færri borða en margir horfa á og dást að.