áhrif hvalveiða á ferðaþjónustu.
Virðulegi forseti. Hér hefur farið fram nokkuð áhugaverð umræða um það hvort menn eigi að horfa á eða veiða. Í mínum huga tel ég þetta geta farið ágætlega saman. Við þekkjum það að til er nóg af hval, það finnst mér alla vega. Við sjáum alls staðar þar sem við komum að hvalastofnar eru að færa sig nær landinu, þeir koma meira inn á firði o.s.frv. Ég vil líka minna á að hvalir borða það sem er með sporð, sem er kallað fiskur og er í samkeppni við okkur um að nýta þá auðlind. Ég tel að þetta geti farið vel saman en vissulega verðum við að gæta hófs og vera ekki að veiða hval þar sem verið er að sýna hann.