kolefnishlutleysi við hagnýtingu auðlinda hafsins.
Forseti. Engum blöðum er um það að fletta að loftslagsváin er stærsta vandamál heimsins í dag. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir að eiga í þessari umræðu við mig því að hér er verið að reyna að beita því sem hæstv. ríkisstjórn leggur mikla áherslu á, nýsköpun í hugsun þegar kemur að því að takast á við þennan vanda. Ég hef sagt nokkrum sinnum í þessari pontu, forseti, að það er ekkert eitt svar við þeim vanda sem steðjar að jörðinni vegna hlýnunar loftslags. Það eru ekki tvö, þrjú eða fjögur svör: þau eru óteljandi. Við þurfum að taka til á öllum sviðum mannlífs og mannlegrar hegðunar. Þar hef ég horft til þess sem er rótin að þessari fyrirspurn, hvort hægt sé að setja þá stefnu að þar sem ríkið vélar um og útdeilir réttindum til nýtingarleyfa verði kolefnishlutleysis gætt.
Ég hef álíka fyrirspurn inni, forseti, til hæstv. fjármálaráðherrann, en hér horfi ég til málefnasviðs hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þá sérstaklega auðlinda hafsins. Eins og kemur fram í fyrirspurninni er fyrst einfaldlega spurt hvort til greina komi að skilyrða hagnýtingu sameiginlegra auðlinda hafsins þannig að kolefnishlutleysi nýtingarinnar verði tryggt. Þetta er ansi opin spurning og ég hlakka til að heyra ráðherra fara á flug með mér, þ.e. á kaf í djúp hafsins.
Ég spyr síðan, forseti, hvernig slík stefna myndi nýtast í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og styðja við alþjóðlegar skuldbindingar í þeim efnum sem markmið ríkisstjórnarinnar um kolefnishlutlaust Ísland árið 2040. Við höfum sett okkur háleit markmið, háleitari en flestar ef ekki allar aðrar þjóðir, um kolefnishlutleysi árið 2040. Og akkúrat það ætti að ýta frekar undir það sem ég kom að í upphafi máls míns, að við horfum á ótal lausnir og í raun og veru á hvern einasta málaflokk um hvernig náum við kolefnishlutleysi hér.
Ég átta mig á því, forseti, að þetta er ekkert sem hægt er að stökkva í einn, tveir og þrír. Þess vegna spyr ég hvaða áhrif slík stefna myndi hafa á hagnýtingu umræddra auðlinda og, ef ráðherra er fylgjandi stefnunni, hvenær hann teldi skynsamlegt að hún taki gildi? Því það er augljóst mál að ef svona ákvæði yrði sett myndi það hafa mikil áhrif á þau sem nú nýta auðlindirnar.