149. löggjafarþing — 83. fundur,  25. mars 2019.

kolefnishlutleysi við hagnýtingu auðlinda hafsins.

608. mál
[17:43]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina um mikilvægt mál, vissulega. Eins og kom fram í máli hans eru loftslagsmál í brennidepli og þar er að byggjast upp meiri þekking og ekki síður meiri væntingar og kröfur til þess að gripið verði til aðgerða til að sporna gegn þeirri þróun sem flestir vísindamenn á þessu sviði telja að sé að gerast.

Hér er spurt og farið inn í eina tiltekna atvinnugrein og ég skal leitast við að reyna að svara eftir bestu getu, eins og fermingarbarnið sagði. Það er spurt hvort við ættum að skilyrða hagnýtingu einhverra sameiginlegra auðlinda á þann veg að reynt yrði að tryggja kolefnishlutleysi þeirrar sömu nýtingar. Ég held að þetta sé mjög vandasamt viðfangsefni. En ég ætla að reyna að nálgast þetta aðeins út frá sjávarútveginum og reyna þá að færa mig nær spurningunni.

Ég tel að sjálfsögðu mikilvægt að orkuskiptin, sem á margan hátt mætti segja að séu hafin í sjávarútvegi, byggi á traustum grunni og ekki síður tæknilegum grunni og ég held að við séum ekki á þeim stað í dag að geta svarað því með óyggjandi hætti, miðað við núverandi tæknistig, hvort við gætum náð meiri árangri með því að skuldbinda sjávarútveginn og þess vegna fiskeldi til að vera kolefnishlutlaust í framleiðslu umfram þær aðgerðir sem fyrirhugaðar eru í aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum. Það er mjög metnaðarfull aðgerðaáætlun og ég tel breiða samstöðu um hana og mikið kappsmál hjá ríkisstjórninni að fylgja henni eftir. En ástæðan fyrir því að ég horfi frekar til hennar er fyrst og fremst sú að þar eru hvatar til þess og verkefni nefnd til að taka á í þessum efnum. En ekki síður vil ég nefna það að eldsneytiskostnaður er verulegur hluti rekstrarkostnaðar í sjávarútvegi og skattlagning þar er þar af leiðandi mikill hvati til orkuskipta.

Það má ekki heldur horfa fram hjá því að það hefur náðst hjá sjávarútveginum verulegur árangur í því að draga saman í losun gróðurhúsalofttegunda. Það má ætla að um 43% samdráttur hafi orðið í þeirri atvinnugrein frá árinu 1990. Ég efa það að aðrar atvinnugreinar hafi náð viðlíka árangri og sjávarútvegurinn. Fyrst og fremst má rekja þetta til, að sögn þeirra sem um þessi mál gerst véla, til bættrar veiðistjórnar. Það er ekki fyrr en núna á síðustu tveimur til fimm árum að menn sjá nýja tækni í skipum sem hafa leitt til þess að þau eru loftslagsvænni, en varðandi flotann sjálfan eigum við miklu lengra í land en í bílaflotanum. Það hefur náðst mikil hagræðing með betri stýringu veiða og sparneytnara úthaldi. Það krefst hvort tveggja nýrrar tækni og loftslagsvænna eldsneytis ef við eigum að fara lengra í þessa átt.

Ef horft er til þess með hvaða hætti stjórnvöld geta stutt við þetta þá má nefna einhvers konar stuðning við sjávarútveginn til þess að hraða þróuninni. Eitt lítið dæmi varðar stimpilgjöld af skipum sem er eina atvinnugreinin sem ber þetta gjald, þennan skatt. Ef við værum t.d. með atvinnugreinina á sama stað stadda og annan atvinnurekstur þá gæti það hugsanlega flýtt fyrir endurnýjun skipastólsins sem veitir ekkert af.

En sem svar við spurningunni sem hv. þingmaður ber upp um skilyrðinguna þá tel ég að þær aðgerðir sem við höfum verið að vinna eftir og erum að vinna að séu í stöðunni í dag miklu raunhæfari og betri til að ná þessu sameiginlega markmiði okkar, frekar en að við getum farið að skilyrða úthlutun takmarkaðra gæða til að ná tilteknum árangri á þessu sviði. Ég held að það yrði erfitt fyrir okkur í dag að koma því á. Ég geri mér grein fyrir því, eins og hv. þingmaður lagði málið upp, að hann hugsar þetta í lengri tíma en ég er á þeim stað aftur á móti að ég tel að við þurfum að sjá betri og meiri tækniþróun í útgerðinni, (Forseti hringir.) sjávarútveginum, áður en við getum komist á þann stað að skilyrða þetta tvennt.