149. löggjafarþing — 83. fundur,  25. mars 2019.

kolefnishlutleysi við hagnýtingu auðlinda hafsins.

608. mál
[17:50]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Kolbeinn Óttarsson Proppé) (Vg):

Forseti. Ég þakka umræðuna og hæstv. ráðherra fyrir svarið. Í mínum huga er enginn efi á því að þetta verði svona í framtíðinni. Ég held að það verði þannig í heiminum að við horfum á að við verðum að halda kolefnishlutleysi. Og þegar almennilegt kerfi með losunarheimildir verður komið á og við verðum farin að reikna þær til þess kostnaðar sem raunverulega býr að baki þeim, munum við ekki hugsa frekar um það. Það verður bara þannig að ef maður ætlar að nýta eitthvað þá þarf að tryggja kolefnishlutleysi. Það verður þannig með allar atvinnugreinar, sérstaklega þær sem nýta sameiginlegar auðlindir okkar. Við skulum muna það að eins og fleira er matur en feitt ket, og það er fleira kolefnishlutleysi en samdráttur í útblæstri, þó að það sé náttúrlega alltaf best, en sérstaklega er spurt um kolefnishlutleysi af því að verið er að horfa til bindingar.

Dæmi er um það í skipulagi erlendra borga að stofnanir og jafnvel háskólar sem vilja stækka við sig fá að gera það gegn því að umferð aukist ekki, að þau haldi hlutleysi í bílaumferð en geti stækkað ef þeim tekst að halda aukningunni niðri, í núlli. Ég held að þetta sé þannig sem við verðum að hugsa það, að maður geti nýtt auðlind, en þá megi maður ekki auka neikvæðni sameiginlegs loftslagsbúskapar þjóðarinnar. Þess vegna spyr ég inn í framtíðina. Ég átta mig á því að þarna er verið að stíga fyrstu skref í einhverju sem við getum ekki svarað núna strax.

Orkuskiptin eru hafin. Síðustu almennilegu orkuskiptin sem þjóðin fór í voru þegar skipt var um orkugjafa í húsum og á heimilum fólks. Þá kom hið opinbera mjög sterkt þar inn í. Þetta var bara gert á tveimur, þremur árum. Markaðurinn getur ekki einn ráðið för. Það þarf ekki bara hvata heldur mikinn (Forseti hringir.) stuðning frá hinu opinbera. Við skulum muna að við verðum í raun sem vestrænt samfélag ekki bara (Forseti hringir.) að vera kolefnishlutlaus, heldur kolefnisneikvæð ef við horfum á búskapinn í heiminum, því að það eru ekki öll lönd sem ná hlutleysi.