kolefnishlutleysi við hagnýtingu auðlinda hafsins.
Virðulegi forseti. Ég þakka umræðuna kærlega, ætla fyrst að svara hv. þm. Guðmundi Andra Thorssyni. Þetta er í stjórnarsáttmálanum og í áætluninni um loftslagsmálin sem ríkisstjórnin kynnti og umhverfisráðherra fer fyrir. Það var gert ráð fyrir því að við ætluðum að stefna að banni við notkun svartolíu í efnahagslögsögu Íslands. Það kann að taka einhvern tíma að koma því til framkvæmda, en þetta er vissulega komið á dagskrá.
Þegar hér er rætt um þessa framtíðarsýn hv. þingmanns og fyrirspyrjanda, málshefjanda, Kolbeins Óttarssonar Proppés, deili ég alveg hugsuninni og sýninni til þessara mála, að þetta er eitthvað sem mun þyngjast í umræðu og framkvæmd. En þegar við förum að ræða um sameiginlegar auðlindir þurfum við líka að horfast í augu við að það kann að vera að við þurfum að fara að skilgreina hugtakið upp á nýtt. Jarðnæði, heitt vatn eða virkjanir og andrúmsloftið o.s.frv., hvernig þú ætlar að ganga um götur bæjarins o.s.frv., það getur vel verið að við þurfum að fara að taka þetta fram í stærra samhengi.
Þegar við horfum bara á eina atvinnugrein per se, sjávarútveginn í þessu sambandi, þá er hann einungis með 11% af þeirri losun sem fellur undir Kyoto-samkomulagið. (Gripið fram í.)Í öðrum atvinnurekstri eru 89% af skuldbindingunni. Þar er stóra verkefnið. Þessi atvinnugrein er á réttri leið og hefur sýnt alveg fádæma þrautseigju og hugkvæmni og tæknigetu til þess að takast á við þetta. Það ber að fagna því sérstaklega.
En ég skal glaður taka þennan söng í framhaldinu við hv. þingmann þegar hann er búinn (Forseti hringir.) að aflétta öllum fyrirvörum á þeim málum sem ég er að vinna með.