149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[15:07]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Nú hef ég hugsað mér að láta sem svo að hæstv. ráðherra hafi spurt mig út í það hvort það kæmi til greina af minni hálfu, eða hvort ég myndi samþykkja það, að breyta fjármálastefnunni til að ganga á þann afgang sem gert er ráð fyrir í stefnunni.

Þá vil ég benda á 10. gr. laga um opinber fjármál þar sem segir hvenær megi breyta stefnunni. Lögð er áhersla á að til stefnunnar sé vandað og um hana sé fengin breið sátt í þingi, vegna þess að hún eigi að standa allt kjörtímabilið, því að henni megi aðeins breyta ef hér verði mikið efnahagsáfall eða þjóðarvá.

Mér sýnist svo, þó að ekki sé litið nema bara til fráviksspár eða óvissuþátta, að það sé ekki um neitt efnahagsáfall að ræða eða einhverja stórkostlega þjóðarvá sem ekki megi taka á með öðrum hætti en að breyta stefnunni. Hér væri enn þá hægt að beita öðrum aðferðum, eins og hagræðingu og aukinni tekjuöflun.

Ég held því, forseti, (Forseti hringir.) að lögin leyfi okkur ekki að breyta stefnunni við þessar aðstæður.