149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[15:49]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Hann nefndi sérstaklega ökutæki og eldsneyti, og að hagvöxturinn væri drifinn áfram af einkaneyslu, það hefur nú gerst mjög reglubundið í gegnum tíðina.

Nei, ég lít ekki þannig á vegna þess að við erum að fara inn í breytt umhverfi þar sem við erum að snúa okkur að orkuskiptum og öðru slíku og einhver yfirgangstími verður í því sem verður ekki að mínu mati þess eðlis að við borgum áframhaldandi þau gjöld sem við erum að borga plús einhver önnur gjöld ef hann er að vísa í það, ef ég skil hann rétt. Í mínum huga er það þannig að við getum ekki innheimt hefðbundin ökutækjagjöld og bætt ofan á þau að öðru leyti.

Ef hv. þingmaður er að vísa í kolefnisskattinn er hann að hækka. Ég tel að það sé bara eitt af því sem við verðum að gera til að flýta fyrir orkuskiptum til að geta staðið við þau markmið sem við höfum lofað (Forseti hringir.) fram til þessa í loftslagsmálum.