fjármálaáætlun 2020--2024.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra andsvarið, það er svo sem yfir margt farið þar. Á aldrei að endurskoðun stefnuna? Svo sannarlega á ég ekki við það. Ég hef raunar verið talsmaður þess að þarna sé ákveðinn sveigjanleiki. Í miklum efnahagslegum áföllum verður slíkt svigrúm klárlega að vera til staðar svo að ríkisstjórn geti lagt fram nýja fjármálastefnu, enda væri hjákátlegt að ætla jafnvel að skera mjög myndarlega niður í ríkisrekstrinum þegar verið er að takast á við kreppu út af fjármálastefnu sem var sett fram í góðæri.
Það sem ég átti við með orðum mínum var að við ættum hins vegar að gæta þess hvaða fordæmi við setjum, af því að við erum að móta viðmið um það hversu mikið frávik þarf að eiga sér stað frá hagspám til að við göngum svo langt að endurskoða og leggja fram nýja stefnu. Það á heldur ekki að vera svo að minnstu frávik séu til þess fallin að hægt sé að skauta fram hjá þeim með nýrri stefnu. Hér er enn sem komið er ekki annað um að ræða en mjög þægilega aðlögun íslenska hagkerfisins samkvæmt spám, þeim sömu spám og hæstv. ráðherra vísar til. En slík aðlögun getur engu að síður haft veruleg áhrif á afkomu ríkissjóðs. Það var kannski það sem var varað við strax í upphafi þegar fjármálastefna ríkisstjórnarinnar var sett fram, að hún þyrfti að gefa meira svigrúm til að takast á við slíkan veruleika. Ekki væri hægt að ganga út frá því að þetta væri allt saman draumur einn um ókomna tíð.
En af því að vísað er í opinberu spárnar og hvað við eigum við að nota er rétt að við eigum erfitt um vik með að styðjast við annað en opinberar hagspár. En þegar varað er við því að þær séu kannski bjartsýnar, þegar Hagstofan sjálf hefur sagt að með loðnubrestinum séu þær í raunar rangar, það hefur komið mjög skýrt fram, þá kemur að einu af grunngildum laga um opinber fjármál sem er varfærni. (Forseti hringir.) Það þarf ekki að vera búið að eyða síðustu krónunni og hafa ekkert svigrúm til að takast á við óvænt útgjöld þegar kólnar aðeins í hagkerfinu.