149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[18:03]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég hef fyrr í dag verið mjög gagnrýnin á fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Ég vil í þessu andsvari við hv. þingmann samt gleðjast samt yfir einum hlut sem er að í samgöngukaflanum er ekki gert ráð fyrir vegasköttum. Mér finnst það mjög ánægjulegt, enda hafði ég miklar áhyggjur af því að eins og það var lagt upp og um var rætt yrði það kjördæmi mitt og hæstv. samgönguráðherra sem ætti að bera þá skatta uppi.

Nú er það svo að í þingflokki hv. þingmanns var mikill áhugi fyrir því að setja á vegaskatta og ákveðnir þingmenn fóru um landið til að halda fundi og auglýsa og tala um hversu góð hugmynd það væri. En hún er sem sagt ekki samgöngukaflanum og ég er ánægð með það. Ég vil spyrja hv. þingmann hvers vegna sú stefnubreyting hefur orðið hjá Sjálfstæðisflokknum.