fjármálaáætlun 2020--2024.
Frú forseti. Á bls. 270 í áætluninni kemur fram að lækkun á framlögum til landbúnaðar frá fjárlögum 2019 til ársins 2024 nemur 768 millj. kr. Það er deginum ljósara að það er sótt að landbúnaðinum á Íslandi sem aldrei fyrr. Tollasamningurinn við Evrópusambandið tók gildi 1. maí sl. Sá samningur mun leiða til aukins innflutnings á landbúnaðarvörum, einkum kjöti og ostum, í samkeppni við íslenskan landbúnað. Ljóst er að þetta mun hafa mikil áhrif á íslenska búvöruframleiðslu.
Ofan á þetta stóra mál kemur síðan annað stórt mál sem er dómur EFTA-dómstólsins um að við verðum að heimila innflutning á hráu kjöti, eggjum og mjólk. Landbúnaðarráðherra hefur kynnt frumvarp í þá veru og að öllu óbreyttu mun innflutningur á hráu kjöti hefjast á haustmánuðum. Því miður hef ég hef ekki komið auga á það í áætluninni að nokkuð sé að frétta af fjárveitingum til að standa straum af mótvægisaðgerðum vegna þessa. Ég spyr hv. þingmann: Er þessi fjármálaáætlun ekki áfellisdómur yfir landbúnaðinum?