fjármálaáætlun 2020--2024.
Verður nú haldið áfram umræðum um fjármálaáætlun 2020–2024 og þá með því að ráðherrar gera grein fyrir sínum málaflokkum og taka þátt í umræðum um þá.
Í kvöld verða umræður um málaflokka forsætisráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Umræður um málaflokka annarra ráðherra verða á morgun. Rúmlega ein og hálf klukkustund er áætluð fyrir hvern ráðherra og umræður um málaflokk hans. Ráðherrar hafa 5 mínútur í upphafi til að fjalla um málaflokka sína. Síðan geta þingmenn beint fyrirspurnum til ráðherrans, einn frá hverjum stjórnarflokki á hvern ráðherra, að undanskildum þingmönnum úr flokki viðkomandi ráðherra og tveir frá hverjum stjórnarandstöðuflokki. Þingmenn og ráðherra fá 2 mínútur í fyrra sinn og 1 mínútu í seinna sinn í báðum umferðum. Andsvör eru ekki leyfð.