fjármálaáætlun 2020--2024.
Herra forseti. Við ræðum fjármálaáætlun eins og hæstv. forseti nefndi í upphafi. Þetta er fyrsta fjármálaáætlunin frá því að lög um opinber fjármál tóku gildi, sem er önnur fjármálaáætlun sömu ríkisstjórnar.
Eðli máls samkvæmt byggir þessi fjármálaáætlun því á gildandi áætlun sem hér var rædd fyrir ári sem snerist að miklu leyti um að styrkja samfélagslega innviði, heilbrigðiskerfi, menntakerfi og samgöngukerfi, fyrir utan þá nýju fjármögnun umhverfismála sem þar kom fram, sem var auðvitað gríðarleg breyting frá fyrri áformum.
Því má segja að meginstefna núverandi ríkisstjórnar hvað varðar tekju- og gjaldaráðstafanir liggi nú þegar fyrir og haldið er áfram í sömu átt.
Ég hef reynt að fylgjast með umræðum í dag og átta mig á því að verulegur hluti þeirra hefur snúist um „hvað ef“ forsendur þessarar fjármálaáætlunar breytast: Hvað ef eitthvað gerist? Fjármálaáætlun sem lögð er fram byggir ávallt á nýjustu gögnum sem liggja fyrir og það eru nýjustu hagspár. Ei ber því að leyna að staða hagkerfisins er um margt mjög góð. Við höfum auðvitað séð verulega góða þróun þegar kemur að skuldastöðu hins opinbera. Sömuleiðis hvað varðar þjóðhagslegan sparnað. Allar kennitölur eru í raun með mjög jákvæðum hætti. Um leið og við sjáum fram á að líklega fer að hægja aðeins um í hagkerfinu eru prýðilegar aðstæður til að takast á við það. Fyrirséð er að það muni draga úr atvinnuvegafjárfestingu en um leið er þá mikilvægt að ríkið stígi inn með aukinni opinberri fjárfestingu og það er boðað í fjármálaáætluninni.
Þar undir er helst veruleg aukning til samgönguinnviða, nýsköpunar og tækniþróunar. Því er gert ráð fyrir að fjárfestingarstig hins opinbera hækki umtalsvert á næstu tveimur árum. Þetta átak í fjárfestingum er mjög vel tímasett og miðar að því að tryggja atvinnustig í landinu. Hvað varðar fjárfestingu í nýsköpun og tækniþróun, sem miðuð er að því að nýta tiltekna fjármuni af arðgreiðslum Landsvirkjunar, tel ég vera risastórt, ekki bara atvinnumál heldur líka efnahagsmál sem miðar að því að fjölga stoðum undir stöðugt efnahagskerfi og auka veg þekkingargreina í landinu.
Ég ætla ekki að fara inn í útgjöld einstakra málaflokka því að það er nokkuð sem einstakir fagráðherrar munu gera. En ég hlýt þó að nefna þau áform sem ríkisstjórnin hefur kynnt í tengslum við félagslegar umbætur í tengslum við kjarasamninga. Þar vil ég sérstaklega nefna lengingu fæðingarorlofs, sem er mikilvægt lífskjaramál, ekki síst fyrir ungt barnafólk, hækkun stofnframlags til almenna íbúðakerfisins, sem festir það kerfi í sessi, félagslegt húsnæðiskerfi og sömuleiðis breytta útfærslu skattaaðgerða frá forsendum gildandi fjármálaáætlunar þar sem um er að ræða annars vegar verulega aukningu barnabóta en sömuleiðis ákveðnar aðgerðir aðrar á gjaldahlið sem lúta að stuðningi við bókaútgáfu og aðgerðir til að bæta starfsumhverfi einkarekinna fjölmiðla, hvort tveggja stór mál sem skipta verulegu máli fyrir þessa þætti.
Síðan vil ég sérstaklega nefna aukin framlög til byggingar nýrra hjúkrunarrýma sem munu líka skipta verulegu máli til að mæta þeirri miklu uppsöfnuðu þörf sem þar er.
Ég nefndi áðan að hv. þingmenn hefðu rætt töluvert um að áætlunin byggðist á forsendum gildandi hagspár, sem er eiginlega gagnrýni sem ég get ekki tekið undir. Ég veit ekki á hvaða öðrum forsendum áætlunin ætti að byggjast. En það er fínt að tala í viðtengingarhætti og ég geri ekki lítið úr því. En ég vil benda á að fjármálaráð hefur sett fram ábendingar um að mikilvægt sé að setja fram fráviksspá. Við því er brugðist í fjármálaáætluninni. Fráviksspáin er birt á bls. 58 í áætluninni. Það sýnir um leið að við erum að bæta framkvæmd laga um opinber fjármál, þróa það áfram hvernig við tökumst á við langtímaáætlunargerð, ásamt því að reyna að gera okkur í hugarlund hver frávikin geti orðið.
Hvað varðar málaflokka forsætisráðuneytisins er kannski fljótfarið yfir þá. Ég vil nefna að þar munar verulega um viðbyggingu við Stjórnarráðshúsið. Gert er ráð fyrir hönnun hennar og framkvæmdum sem er áætlað að ljúki árið 2023. Þetta er framkvæmd sem stefnan var sett á í ályktun sem samþykkt var til að fagna 100 ára afmæli fullveldis. Það munar um þessi framlög þegar kemur að málefnasviði forsætisráðuneytisins.
Það eru 140 millj. kr. á áætlunartímabilinu við gerð manntals hjá Hagstofu Íslands sem sömuleiðis var gert ráð fyrir í síðustu fjármálaáætlun en viðbót kemur inn í launatölfræði. Svo hlýt ég að nefna að lokum að jafnréttismál hafa flust yfir til forsætisráðuneytisins frá síðustu fjármálaáætlun. Þar eru litlar breytingar á útgjöldum til málaflokksins en hins vegar er nokkuð sem hv. þingmenn (Forseti hringir.) þurfa að ígrunda, að gert er ráð fyrir að framlög til Jafnréttissjóðs falli niður eftir tvö ár sem er í takt við þá ályktun sem var samþykkt á sínum tíma um fimm ára framlög til Jafnréttissjóðs, (Forseti hringir.) en það er hins vegar eitthvað sem við þurfum að horfa til lengri tíma hvort við viljum gera breytingar á.