fjármálaáætlun 2020--2024.
Herra forseti. Það er rétt að það hefði verið forvitnilegt að ræða málflutning einstakra þingmanna við síðustu fjármálaáætlun. En hér erum við að ræða núverandi áætlun. Horfurnar eru orðnar það dökkar að forsendurnar eru því miður brostnar. Og fyrst við erum ekki í sagnfræði og okkur er gert að horfa til framtíðar neyðumst við til að ræða það.
Það er auðvitað margt ágætt í þessu plaggi en annað sem er verra. Ég get nefnt skattkerfisbreytingar sem verkalýðshreyfingin mótmælti, lækkandi framlög til háskóla, minni húsnæðisstuðning og skert framlög jöfnunarsjóðs sem mun bitna á þjónustu við íbúa og fatlaða.
En ég vil fyrst og fremst biðja hæstv. ráðherra að svara því hvernig brugðist verði við ef kólnun í efnahagslífinu verður meiri en forsendur áætlunarinnar gera ráð fyrir og stefnir í. Hæstv. ráðherra hefur nefnilega sjálf varað sterklega við fjármálareglu sem fjármálastefna ríkisstjórnarinnar byggir á. Þannig sagði hún í ræðu árið 2017, með leyfi forseta:
„Af hverju hef ég áhyggjur af þessum fjármálareglum? Jú, ég tel að þær bindi mjög hendur framkvæmdarvaldsins og löggjafarvaldsins til þess að taka ákvarðanir um innspýtingu í þau kerfi sem við teljum að þarfnist innspýtingar.“
Nú hefur hæstv. fjármálaráðherra hins vegar í viðtali sagt að ef hægi á hagvexti vegna efnahagslegra áfalla sjái hann enga aðra möguleika en að skera niður á útgjaldaliðnum. Var það ekki einmitt nákvæmlega þessi staða sem hæstv. ráðherra varaði við í ræðu fyrir tæpum tveimur árum?
Ég spyr því: Er hæstv. forsætisráðherra sammála fjármálaráðherra um að þetta sé eina leiðin? Kemur til greina að afla tekna og þá hvernig? Kemur til greina að afnema fjármálaregluna? Eða erum við ráðherra kannski ekki lengur sammála um að það skipti mestu máli að verja velferðarkerfið?