149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[18:46]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Hann vísar hér í, ef ég man rétt, 7. gr. laga um opinber fjármál þar sem settar eru ákveðnar fjármálareglur. Það er alveg hárrétt hjá hv. þingmanni því að ég og þingmenn í mínum flokki vorum einu þingmennirnir (Gripið fram í.) sem lögðust gegn þessari reglu þegar lögin voru afgreidd 2015. (Gripið fram í.) Ja, ég ætla bara að rifja þetta upp, það voru fjórir sem sögðu nei við þessu og það voru þingmenn Vinstri grænna, ef ég kann þetta rétt. En ég skal fara og kíkja aftur í símann minn því að það voru ekki fjórir þingmenn samanlagt í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði og Samfylkingunni þá. Þetta skulum við bara rifja upp í næsta andsvari.

Það hefur komið skýrt fram af hálfu hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra í dag að við erum einmitt betur í stakk búin sem hagkerfi til að takast á við áföll en við höfum lengi verið. Hér er verulegur afgangur af rekstri ríkisins. Hér hefur verið lagt til hliðar í varasjóði. Það er eitt af því sem við höfum verið sammála um þegar kemur að stefnu í ríkisfjármálum að það er mikilvægt að hafa borð fyrir báru. Því er eðlilegt að við horfum til þess að við erum betur í stakk búin til að mæta ófyrirséðum áföllum en oft áður. Ég segi ófyrirséðum því þó að hv. þingmenn fari yfir sviðið og telji sig vita hvaða áhrif hugsanleg áföll í flugrekstri geti haft, sem hér hefur verið mikið vitnað til í dag, er það svo að þegar við gerum langtímaáætlanir hljótum við að byggja á þeim opinberu gögnum sem gert er ráð fyrir að byggja á við mótun slíkrar stefnu. Við breytum ekki þessari stefnu milli daga ef óvænt áföll verða hjá einkafyrirtækjum. Þau geta vissulega haft áhrif á hagkerfið, svo sannarlega, ekki síst lítið hagkerfi eins og Ísland, ekki síst hagkerfi sem mætti hvíla á fjölbreyttari stoðum en það gerir í dag. Þess vegna gerði ég sérstaklega að umtalsefni málefni nýsköpunar áðan. En þetta er sú aðferðafræði sem við hljótum að byggja á.