149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[18:48]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Það er mjög slæmt ef maður þarf að eyða hálfri mínútu í að leiðrétta rangfærslur hæstv. forsætisráðherra. (Gripið fram í.) Þannig var að við atkvæðagreiðslu um 7. gr. greiddu þingmenn Samfylkingarinnar atkvæði gegn þeirri grein og sögðu í atkvæðaskýringu að þau myndu afnema regluna um leið og þau kæmust til þegar ljóst var að hún yrði samþykkt. Eðlilega greiddu hins vegar þingmenn atkvæði um lögin um opinber fjármál í heild sinni, þannig að þetta er rangt hjá ráðherra.

Ég tel mig ekkert vita hvað gerist en hins vegar er okkur gert að bregðast við því sem mun hugsanlega gerast. Nú þegar sjáum við aðhald. Við sjáum aðhald m.a. þegar kemur að skerðingu til jöfnunarsjóðs sem skiptir miklu máli. Við sjáum að það er innbyggð aðhaldsregla þegar kemur að opinberu störfunum. Verðbólgan þarf nú ekki að hækka nema úr 3,8% frá forsendum upp í 4,3% til að það sé ekkert svigrúm til launahækkana.