149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[19:04]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Svigrúmið? Við erum auðvitað að auka varasjóðinn og höfum verið að auka hann. Það er til þess að bregðast við ákveðnum ófyrirséðum þáttum. En það sem ég var að segja áðan er að við erum hins vegar að reyna að leggja spilin á borðið í miklu meira mæli en gert hefur verið — af því að við viljum horfa til lengri tíma. Það er hægt að reikna það út, t.d. með barnabæturnar, hverju þær skila í krónutölum. Það er auðvitað mismunandi hvort maður er einstæður eða í sambúð. Það hefur verið reiknað út að fyrir einstætt foreldri með tvö börn séu þetta 114.000 kr. á ári, svo dæmi sé tekið, og það er eitthvað sem munar um.

Hvað varðar skattatillögurnar er það auðvitað miklu lengri umræða en ég næ að fara yfir, það sem hv. þingmaður nefnir. En við erum að fara inn í það sem við köllum framsækið skattkerfi með þremur þrepum, með lágtekjuþrepi með lágri prósentu. Við erum að færa okkur meira í átt til Norðurlandanna, þvert á það sem verið hefur. Hér hafa skattleysismörkin verið tiltölulega há. Norðurlöndin hafa einmitt verið með tiltölulega lágt lágtekjuþrep en lægri skattleysismörk.

Þannig að við erum að færa (Forseti hringir.) okkur aðeins yfir í norræna kerfið ef þessar tillögur ná fram að ganga í þinginu.