fjármálaáætlun 2020--2024.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir að koma hingað og fyrir innlegg hennar í umræðu um ríkisfjármálaáætlun 2020–2024.
Eðli máls samkvæmt má kannski segja að eitt stærsta hlutverk hæstv. forsætisráðherra sé það sem kallað er samhæfingarhlutverk, að láta þetta allt saman ganga upp. Í greinargerð er farið yfir alla þá þætti sem er verið að vinna að á vettvangi ríkisstjórnar og undir forsæti hæstv. ráðherra, stórum stefnumótandi viðfangsefnum. Það er auðvitað freistandi að ræða þau út frá ríkisfjármálaáætluninni og í samhengi við peningamálin því að þau eru eitt af stóru verkefnunum sem eru undir forræði hæstv. forsætisráðherra.
Ráðherranefnd um efnahagsmál og um ríkisfjármál, við erum með nokkrar ráðherranefndir og verið er að bæta við og nú erum við komin með ráðherranefnd um jafnréttismál. Spurning mín er þessi: Sjáum við fyrir okkur fleiri ráðherranefndir og virkar það skipulag? Vegna þess að við leysum ekki alltaf allt með nefndum.
Ég ætla síðan að klára í seinni umferðinni að ræða kynjaða fjárlagagerð. Hingað kom í heimsókn til hv. fjárlaganefndar héraðsstjórn Baska og hafði mikinn áhuga á því hvað við erum að gera í kynjaðri fjárlagagerð, sem hefur verið mestmegnis í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. En nú eru jafnréttismálin komin undir forræði hæstv. forsætisráðherra. Ég ætla að koma aðeins frekar inn á það í seinni ræðu.