fjármálaáætlun 2020--2024.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á því fyrirkomulagi sem við höfum, þar sem við höfum tvær lögbundnar ráðherranefndir, ráðherranefnd um ríkisfjármál og ráðherranefnd um efnahagsmál — sem við köllum ráðherranefnd um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfis.
En síðan hefur verið starfandi ráðherranefnd um jafnréttismál og ráðherranefnd um samræmingu mála, sem í raun og veru snýst fyrst og fremst um þau verkefni sem þarf að kalla til sérstakrar ráðherrafunda um og nauðsyn er á að samræma aðgerðir milli ólíkra ráðuneyta. Við erum ekki með fjölskipað stjórnvald. Ríkisstjórn Íslands er ekki fjölskipað stjórnvald, hver ráðherra ber ábyrgð á sínum málaflokki. En um leið hefur pólitísk umræða þróast þannig að gerð er meiri krafa um það að pólitísk ábyrgð ráðherra nái yfir ríkisstjórnina alla.
Það er í raun og veru, held ég, að það hafi verið undanfari þess að ákveðið var að setja slíkar ráðherranefndir á laggirnar, fyrst í tíð Jóhönnu Sigurðardóttur sem forsætisráðherra. Ég tel að þetta sé gríðarlega mikilvægt tæki til þess einmitt að stilla saman strengi ólíkra ráðuneyta. Það er oft þrautin þyngri.
Ég hef svo sem oft sagt frá því að í tíð minni sem menntamálaráðherra var það þrautin þyngst að láta ólík ráðuneyti vinna saman, því að sílóin eru oft ansi þykk í stjórnsýslunni. Þegar ráðist var í það verkefni að reyna að opna dyr framhaldsskóla fyrir fólkið sem misst hafði vinnu og hafði ekki lokið stúdentsprófi, hefði það fólk til að mynda misst rétt sinn til atvinnuleysisbóta samkvæmt gildandi regluverki ef það hefði farið í nám og þar af leiðandi misst framfærsluna því að ekki átti það rétt á námslánum. Þetta kallaði á samstarf milli mín og þáverandi hæstv. félagsmálaráðherra. Það var í raun og veru undrunarefni hversu flókið verkefni það var að láta ráðuneytin vinna saman, þrátt fyrir einlægan vilja bæði ráðherranna og góðan vilja stjórnsýslunnar í því.
Ráðherranefndirnar hafa reynst mjög mikilvægt tæki til að láta (Forseti hringir.) ráðuneyti vinna saman.