149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[19:10]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Og já, það er fagnaðarefni að heyra að ráðherranefndirnar virki. Það vill oft verða í skipulagi að fleiri nefndir lengja aðeins í ákvarðanatökuferlinu, en gott að heyra þetta, því að þetta eru stór stefnumótandi mál.

Varðandi kynjuðu fjárlagagerðina höfum við kannski í þinginu ekki svo mikið í fjárlagavinnunni orðið vör við kynjaða fjárlagagerð. Auðvitað í tilteknum verkefnum en ekki í samhengi hlutanna. Nú er til ágætisskýrsla, grunnskýrsla, sem hæstv. ráðherra gaf út í mars, og svo áætlun, fimm ára áætlun, um kynjaða fjárlagagerð. Við heyrðum af áhuga basknesku héraðsstjórnarinnar, en spurning mín felst í því að hér hefur verið talað um að það skorti gögn, kyngreind gögn, til að við getum tekið skrefið áfram. (Forseti hringir.) Hvar liggur sú vinna?