fjármálaáætlun 2020--2024.
Hæstv. forseti. Því er oft haldið fram að heilbrigðiskerfið hafi verið miklu betra hérna á árum áður og sé nú svelt. Miklu meiri áhersla hefur verið lögð á samgöngumál en nú er. En á þeim tíma voru ríkisútgjöld miklu lægri en þau eru núna. Þess vegna vaknar spurningin: Fá skattgreiðendur nógu mikið fyrir peningana? Og þó að hæstv. forsætisráðherra spari pening með því að láta ríkið eða ríkisstjórnina senda tölvupóst frekar en bréf, þá skiptir það takmörkuðu máli í heildarsamhenginu.
Þess vegna spyr ég aftur: Er enginn vilji til þess að spara? Því að þó að um sé að ræða fjárfestingu, eins og hæstv. ráðherra nefndi, þá skyldi maður ætla að menn myndu vilja spara einhvers staðar annars staðar á móti. Fjölskylda sem þarf að stækka húsnæði sitt dregur þá væntanlega úr annarri neyslu til þess að spara fyrir fjárfestingunni fremur en að auka önnur útgjöld á sama tíma.