149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[19:35]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ræðum hvernig við viljum haga forgangsröðun í útgjöldum ríkisins. Horfum á hvernig ráðstöfunartekjur hafa þróast, t.d. á tekjuhliðinni. Hverjir hafa setið eftir? Það er ungt fólk og barnafólk. Hvað er ríkisstjórnin að gera? Ríkisstjórnin er að hækka barnabætur til að koma til móts við tekjulágar barnafjölskyldur. Hvað er ríkisstjórnin að gera? Ríkisstjórnin er að lengja fæðingarorlof til að bæta lífskjör ungs barnafólks, risastórt hagsmunamál og lífskjarabót fyrir ungt barnafólk.

Hvað er hvað mest íþyngjandi fyrir þá hópa sem eru tekjulágir, ef við skoðum gögnin og skoðum staðreyndir? Húsnæðiskostnaður. Húsnæðiskostnaður er það sem íþyngir tekjulægri hópum. Þeir verja mjög háu hlutfalli af tekjum sínum í húsnæði. Hvað er ríkisstjórnin að gera? Hún er að auka framlög í félagslega húsnæðiskerfið og vill styðja betur við það í samráði við verkalýðshreyfinguna og í samráði við sveitarfélög, til að byggja upp félagslegt húsnæðiskerfi þannig að fólk þurfi ekki að verja jafn stórum hluta af ráðstöfunartekjum sínum í húsnæði.

Lífskjör er nefnilega hægt að bæta með aðgerðum stjórnvalda og það er það sem ríkisstjórnin er að gera.

Hvað er ríkisstjórnin að gera og leggja til í skattatillögum sínum? Það er að koma í veg fyrir skattskrið, eins og ég nefndi áðan, með því að samræma viðmiðunarmörk í þrepaskiptu kerfi þannig að við séum ekki að horfa á að þeir sem séu tekjuhærri taki til sín hlutfallslega meira af skattalækkunum. Það er það sem ríkisstjórnin er að gera.

Hv. þingmaður spyr: Hvað er verið að gera til að koma til móts við þessa hópa? Það er t.d. þetta.

Þá hef ég ekki farið út í þá fjármuni sem ætlaðir eru bæði í fjárlögum ársins í ár og í fjármálaáætlun til kjarabóta fyrir örorkulífeyrisþega, sem er líka risastórt mál sem þarf að fara að ákveða, (Forseti hringir.) hvaða aðgerðir eigi að ráðast í til að koma sem best til móts við þann hóp.